Hef lagt af stað út í ytra-sólkerfið.
28.8.2007 | 11:20
Hef víst lagt í litla ferð, og mun þegar tími gefst hripa niður örfá orð á aðra síðu, þ.e. http://mrbensi.wordpress.com.
Það er bannað að skrifa athugasemdir s.s. farðu varlega, gangi þér vel og annað slíkt rugl. Það var nóg að heyra það áður en ég fór.
Komst að því annars að Rússneska er í leið að verða eitt aðaltungumála Reykjavíkur. Maður getur varla heimsótt Hagkaup án þess að heyra spasíba rússkí Abramovich Moskva, ja khochú f Reykjavíkje moja Lada.
Tími
21.8.2007 | 09:39
Byggði óvart tímavél í maí þegar ég ætlaði að setja saman blandara. Setti á stillingu þrjú, og er þessvegna kominn hingað, til ársins 1910.
Spái því að Þjóðverjar verði boðberar friðar á þessum óöruggu tímum í Evrópu, og að sparkboltaíþróttin enska fótbolti deyji fljótt út, enda ekki eins fjörug og ruðningur eða virðuleg eins og krikket.
Márar í nágrenninu
25.5.2007 | 21:42
Ég hefi gerst forseti Máritaníu.
Staðan mun hafa verið til sölu á RafFlóa, og keypti ég hana á 15,85 krónur. Ekki er um varanlega stöðu að ræða þar sem Máritanía mun fljótlega verða að héraði í Sandkassalandi, sem heimildir herma að sé staðsett á sunnanverðu norðurkexi.
Ég mun beita mér að því að afnema þrælahald, og innleiða þess í stað Ameríska Átrúnaðargoðskeppnina, en slík skipti hafa mælst vel fyrir í öðrum handklæðahausalöndum.
Ég mun nota þessa færslu til að koma til skila dulkóðuðum skilaboðum til andspyrnunnar í San Marínó: Zigg, zigg zigg, zigg sigg zigg. Zigg klósett zigg, Bubbi, Bubbi, zigg.
Fréttir verða sagðar næst á öðru tunglári (tunglsins Äyeï í Gløbb vetrarbrautinni sem er eins og kunnugt er í Austur-Húnavatnssýslu).
Mumkin kalbika akbar min kalbī, walākin kalbī ajmal min kalbika.
Zigg.
Fréttir frá hinu stóra austri
28.4.2007 | 09:17
Stríð
Til átaka kom milli Dreka og Úlfa í gær. Hinir svikulu Drekar munu hafa ráðist að friðsömum Úlfahóp sem átti leið í gegn um hinn þéttvaxna Güül skóg. Höfðu Drekar fimmtán dreka með sér, og gátu Úlfar ekki staðið af sér þessa fyrirsát. Er hins vegar mjög reimt á þessum slóðum, og náðu andar gamalla Úlfa að ráða niðurlögum drekamanna um það leyti sem þeir héldu að bardaginn væri á enda. 300 manna Úlfaher herjaði þvínæst á Drekaborgina Üla og brenndi hana til grunna. Mun stríð þetta að öllum líkindum verða langt, en þó Drekar eigi stærri virki og dreka eru Úlfar þekktir fyrir yfirburðaherkænsku og að gefast ekki upp þó þeir deyji.
Skipað í embætti
12.4.2007 | 21:41
Uppfinning
8.4.2007 | 17:21
Kastali
5.4.2007 | 16:09
Hef unnið að því fyrri hluta viku að byggja kastala. Sumir gætu mótmælt og sagt að þetta sé í raun hinn þekkti Eltz kastali, en því fer fjarri. Þessi er byggður úr gautaborgskum múrsteinum á fjalli sem flutt var hingað frá Noregi.
Hef líka unnið að því að stela sólinni frá Mexíkó. Mun ég ráða galdrakarl til að negla hana fasta á himininn, en sá heitir Jónmundur Megas og er alþekktur í úthverfum Breiðdalsvíkur fyrir störf sín á sviði bókaþýðinga og manndrápa.
Í dag varð broddgöltur forviða. Engan sakaði.
Ostfriesenwitze
1.4.2007 | 22:38
Bráðlega mun ég birta leiðbeiningar um hvernig heimsyfirráðaráðabruggi skal háttað. Þangað til þá eru hér skrýtlur á Þýsklensku sem og mynd af framtíðarfélagsmálaráðherra Þýskalands:
Ein Ostfriese zum Psychiater: "Herr Doktor, ich höre immer Stimmen, sehe aber keine Personen." - "Ja, und wann haben sie das?" - "Immer wenn ich telefoniere!"
Warum stellen sich die Ostfriesen immer aufs Hausdach, wenns blitzt? Damit sie auch aufs Bild kommen.
Zwei Ostfriesen spielen "Las Vegas". Ein jeder merkt sich eine Zahl, und wer die höhere Zahl gemerkt hat, gewinnt den Einsatz. "Hast Du Dir schon eine Zahl gemerkt?" - "Ja!" - "Welche ist es denn?" - "Zwei!" - "Verdammt, hast schon gewonnen!"
Haha, Austurfrísir geta verið vitlausir.
Stjórnmál
30.3.2007 | 09:53
Ég hef ákveðið að verða fyrirmyndarkapítalisti að atvinnu. Það eina sem ég þarf núna eru tíu milljarðar dollara, en með þeirri upphæð ætti ég að hafa ágætlega mikil völd.
Einnig er það leynilega í vinnslu að stela gull- og olíuforða Bandaríkjanna eins og hann leggur sig, en mikilvægt er að þessar upplýsingar leki ekki til þeirra. Þeir gætu tekið sig til og læst hurðinni.
Ég ætla að fara að leita að hryðjuverkamönnum núna. Þeir felast víðar en margan grunar, en sagt er að þeir geri fyrirtaksosta.